Persónuverndarstefna
Síðast uppfært: september 2026
1. Ábyrgðaraðili
28/10 ehf., kt. 520822-1430, er ábyrgðaraðili þeirra persónuupplýsinga sem safnað er á þessari síðu. Hafðu samband við hello@beyondthesale.is varðandi persónuvernd.
2. Hvaða upplýsingum er safnað
- Nafn og netfang þegar þú kaupir miða eða skráir þig á póstlistann.
- Ef við á: nafn og kennitala fyrirtækis (fyrir reikningsgerð) og upplýsingar um ofnæmi eða fæðuóþol (fyrir skipulagningu veitinga). Þessir reitir eru valfrjálsir í miðakaupaferlinu.
- Greiðsluupplýsingar (kortanúmer o.fl.) eru ekki geymdar af okkur. Þær eru unnar milliliðalaust af greiðsluþjónustuveitanda okkar, Teya.
- Vafrakökur frá Meta (Facebook/Instagram pixel) til að mæla umferð og árangur markaðssetningar, einungis ef þú samþykkir það í vafrakökuborðanum.
- Nafnlausar heimsóknatölur án vafrakaka: hversu lengi heimsókn varir, hvaða hlutar síðunnar eru skoðaðir og hvaðan heimsóknin kom (til dæmis auglýsing). Engar IP-tölur eru geymdar og ekkert er vistað í tækinu þínu.
- Þegar þú gengur frá miðakaupum og samþykkir skilmálana sendum við Meta dulkóðað netfang og auðkenni auglýsingasmells, ef heimsóknin kom úr auglýsingu, til að mæla árangur auglýsinga.
3. Til hvers eru upplýsingarnar notaðar
- Til að staðfesta miðakaup og senda kvittun og upplýsingar um viðburðinn.
- Til að senda þér fréttir af viðburðinum ef þú hefur skráð þig á póstlistann. Þú getur afskráð þig hvenær sem er.
- Til að svara fyrirspurnum sem þú sendir okkur.
- Til að mæla árangur auglýsinga, aðeins með samþykki þínu.
4. Þriðju aðilar
Við deilum upplýsingum með Teya (greiðsluþjónustuveitandi, undir eftirliti Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands) til að vinna úr greiðslum, með MailerLite til að halda utan um póstlistann ef þú hefur skráð þig á hann, og með Meta til markaðsmælinga ef samþykki hefur verið veitt. Enginn þessara aðila fær aðgang að frekari upplýsingum en nauðsynlegt er fyrir sitt hlutverk.
5. Varðveislutími
Upplýsingum um miðakaup er haldið eins lengi og nauðsynlegt er vegna bókhalds- og lagaskyldu. Þú getur óskað eftir eyðingu annarra gagna hvenær sem er.
6. Réttindi þín
Samkvæmt persónuverndarlögum átt þú rétt á að fá aðgang að, leiðrétta eða óska eftir eyðingu þinna persónuupplýsinga. Sendu beiðni á hello@beyondthesale.is.
7. Hafa samband
hello@beyondthesale.is