Viðskiptaráðstefna · Reykjavík 2026

BEYOND THE SALE

Hvernig verður viðskiptavinur að fastakúnna?

Betri samskipti, betri þjónusta, viðskiptasambönd sem endast.

21. október 2026
Harpa · Norðurljós
Allt að 300 gestir
Miðar

Borgar þetta sig?

Hugsaðu um hvers virði einn nýr fastakúnni er til lengri tíma. Kannaðu hvort þitt stéttarfélag endurgreiði hluta af gjaldinu.

VIP

65.000 kr.án vsk
Takmörkuð sæti.
  • Allt í almenna miðanum
  • Fremsta sætaröð
  • Aðgengi að upptöku dagsins í gegnum vef
  • Forgangur þegar einkatímar með Ali daginn eftir fara í sölu

Almennt verð

49.000 kr.án vsk
Fullur dagur, hádegisverður og veitingar innifalin.

Fyrirtæki

49.000 kr.án vsk
Krafa í heimabanka, sætin frátekin í þrjá virka daga, nöfn þátttakenda síðar. 5 eða fleiri fá 10% afslátt.

Öll verð eru án vsk. 24% vsk bætist við í greiðsluferli og sölureikningur fylgir.

Fyrirtæki: bókaðu sætin með einu formi og fáðu kröfu í heimabanka. Sætin eru frátekin í þrjá virka daga og nöfn þátttakenda skráir þú síðar. 5 eða fleiri frá sama fyrirtæki fá 10% afslátt af almennu verði. Bóka fyrir fyrirtæki →

Ef eitthvað kemur upp á máttu framselja miðann til samstarfsfélaga, samkvæmt skilmálum. Sölureikningur fylgir hverjum kaupum svo fyrirtækið þitt bókfærir daginn sem starfsþróun.

Norðurljós tekur 300 manns í sæti. Þegar salurinn er fullur er hann fullur.

Fyrirlesarar

Staðfestir fyrirlesarar

Fólk sem rekur fyrirtæki og stýrir þjónustu á hverjum degi. Þau deila því sem virkar í sölu og þjónustu, með tölum og dæmum, og svara spurningum úr sal eftir hvert erindi.

Fleiri fyrirlesarar eru væntanlegir og spurt og svarað er eftir hvert einasta erindi.

Dóra Jóhannsdóttir
Kynnir & fundarstjóri

Dóra Jóhannsdóttir

Dóra Jóhannsdóttir er höfundur, leikstjóri, leikkona og fyrirlesari með víðtæka reynslu af frásagnarlist, sköpun, samskiptum og því að stýra viðburðum og umræðum á sviði.

Pallborð

Hvað brestur fyrst þegar fyrirtæki stækkar, og hvernig verndar þú fólkið þitt og viðskiptavinina fyrir því?

Ali Douglas
Pallborð

Ali Douglas

Framkvæmdastjóri Motor City Lexus · Kaliforníu

Ali tók við 130+ manna teymi og kerfi sem einhver annar byggði hjá Motor City Lexus. Breytt stefna í því hvernig teymið vinnur saman er það sem hefur haldið teyminu saman og aukið ánægju til muna.

Erla Ósk Ásgeirsdóttir
Pallborð

Erla Ósk Ásgeirsdóttir

Formaður Jafnvægisvogarráðs FKA · Stjórnarformaður Festu

Erla Ósk Ásgeirsdóttir er formaður Jafnvægisvogarráðs FKA og stjórnarformaður Festu – miðstöðvar um sjálfbærni, og situr í stjórnum Bláa lónsins og LeiðtogaAuðar. Hún býr yfir víðtækri reynslu af stefnumótun, umbreytingum og stjórnarstörfum og horfir á vöxt út frá því hverjir sitja við borðið þegar ákvarðanirnar eru teknar.

Helga Jóhanna Oddsdóttir
Pallborð

Helga Jóhanna Oddsdóttir

Stofnandi og framkvæmdastjóri Opus Futura

Helga Jóhanna Oddsdóttir er stofnandi og framkvæmdastjóri Opus Futura og tekst nú á við raunveruleikann sem fylgir því að stækka gervigreindardrifið SaaS-fyrirtæki á mörgum mörkuðum. Hún byggir á 25 ára reynslu af stjórnun og kemur með hagnýtt sjónarhorn á það hvernig hægt er að vaxa hratt án þess að missa sjónar á fólkinu og viðskiptavinunum á bak við tölurnar.

Dr. Edda Blumenstein
Pallborð

Dr. Edda Blumenstein

Stjórnarkona · Ráðgjafi · Lektor við Háskólann á Bifröst

Edda Blumenstein er stjórnarformaður Útilífs, stjórnarmaður í Festi og Rannsóknarsetri verslunarinnar, lektor við Háskólann á Bifröst og fyrirtækjaráðgjafi. Hún er með doktorspróf í viðskiptafræði og býr yfir víðtækri reynslu af stefnumótun, stjórnun, ráðgjöf og innleiðingu breytinga. Í störfum sínum tengir hún saman fræðilega þekkingu og hagnýta reynslu með sérstaka áherslu á hvernig fyrirtæki geta skapað sjálfbæran vöxt með skýrri stefnu og viðskiptavininn í forgrunni.

Dagskráin

Dagurinn í grófum dráttum

08:30Húsið opnar · innritun og morgunkaffi
09:00Dagurinn hefst
Alexandra Noor Douglas
Anna Sigurðardóttir · „Hvernig lætur fólkið þitt öðrum líða, og muna þau eftir ykkur þegar þau fara?“
Haukur Skúlason · „Ánægja viðskiptavina ER viðskiptamódelið.“
10:40Kaffihlé
Sólveig R. Gunnarsdóttir · „Er reksturinn þinn verðmætari á morgun en í dag?“
12:05Hádegishlé
Aðalerindi · Ali Douglas · „Þau gera sitt besta af því að þau fá það besta.“
Auglýst fljótlega
14:50Kaffihlé
Ari Auðunn Jónsson · „Hvar á gervigreind heima innan rekstursins, og hvar á hún ekki að vera?“
Auglýst fljótlega
Alexandra Noor Douglas · lokaorð
Að dagskrá lokinni: tengslamyndun og drykkur til 18:00

Dagurinn fer fram á ensku. Dagskráin er birt með fyrirvara um breytingar og getur tekið breytingum. Liðir merktir TBA eða „Auglýst fljótlega“ verða uppfærðir um leið og þeir eru staðfestir.

Staðsetning
Harpa · Norðurljós

Ráðstefnan fer fram í Norðurljósum, einum glæsilegasta viðburðasal landsins, í hjarta Reykjavíkur við höfnina. Salurinn tekur allt að 300 gesti og er þekktur fyrir framúrskarandi hljóðvist og umgjörð sem gerir daginn að upplifun.

Bílastæðahús Hörpu er í kjallara hússins og strætó stoppar skammt frá. Morgunkaffi, standandi hádegisverður og síðdegiskaffi eru innifalin í miðanum, og ofnæmi og sérþarfir skráir þú í greiðsluferlinu.

Um viðburðinn

Þessi dagur snýst um mikilvægustu undirstöðu viðskipta. Fólkið.

Beyond the Sale er heilsdagsráðstefna um allt söluferlið, frá fyrstu kynnum til langtímasambands, með sérstakri áherslu á sölu og framúrskarandi þjónustu. Að missa starfsmenn og að missa viðskiptavini eru sama vandamálið. Þjónusta er lágmarkið, gestrisni er forskotið. Dagurinn fer með okkur í gegnum allt ferlið innan frá og alla leið að samskiptum við viðskiptavininn.

Punktar Dagsins

  • Gervigreind í rekstri: Hvernig fæ ég tímann til baka og hvar nýti ég hann? Hvar á gervigreind heima í rekstrinum og hvar ekki?
  • Sala og undirbúningur samskipta
  • Verðmætasköpun fyrirtækja: Hvernig verður fyrirtækið verðmætara á morgun en það er í dag?
  • Þjónusta og ánægja viðskiptavina
  • Samskipti í þjónustu
Virðið

Hvað færðu út úr deginum?

Innsýn sem nýtist strax

Aðferðir úr rekstri fólks sem hefur gert þetta sjálft, í sölu og þjónustu. Áherslan er á traust í hverju samtali við viðskiptavininn.

Meiri dýpt í stað hraða.

Fyrirlesarar fá lengri tíma heldur en stutt kynning. Dýpri innsýn í hvernig við byggjum verðmætari rekstur.

Komið saman sem teymi

Stjórnandinn og fólkið sem talar við viðskiptavinina heyra það sama, á sama tíma. Sami orðaforði og sama forgangsröðun daginn eftir. Fyrirtæki bóka sætin með einu formi og fá kröfu í heimabanka.

Upplifun í fyrirrúmi

Ráðstefna um þjónustu á að vera vel þjónustuð. Matur og kaffi allan daginn, umgjörð Hörpu frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu og tengslamyndun til 18:00.

Ráðstefnudagurinn

Einn dagur, fullt hús virðis

  • Öll erindi dagsins, spurt og svarað eftir hvert erindi.
  • Hagnýt innsýn í sölu og þjónustu sem nýtist strax daginn eftir.
  • Þú spyrð í gegnum Slido og upvote-uð spurning fær svar á sviðinu.
  • Morgunhressing, morgunkaffi, síðdegiskaffi og hádegisverður.
  • Tengslamyndun í enda dags og í hádeginu með fólki sem leggur metnað í betri þjónustu.
  • Miðinn kemur beint í símann og sölureikningur fylgir fyrir bókhaldið. Fyrirtæki geta bókað sætin og fengið kröfu í heimabanka.
  • Dagurinn fer fram á ensku og enskumælandi gestir eru velkomnir.
Tryggja miða
Nokkrar spurningar sem vert er að skoða

Hvað kostaði það þig síðast að þjálfa upp starfsmann sem hélst ekki í starfi?

Veist þú hvar gervigreind á heima í þjónustunni þinni, og hvar ekki?

Mátt þú við því að salan og veltan líti nákvæmlega eins út eftir ár?

Það sem þú tekur með þér heim þarf að komast í framkvæmd. Því fleiri frá sama fyrirtæki sem heyra það sama, á sama tíma, því auðveldara verður að framkvæma það strax daginn eftir. Dagurinn er hannaður með það að leiðarljósi að gera þetta eins auðvelt fyrir þig og hægt er: þú framkvæmir, en við gefum þér aðferðirnar og leiðina, svo hver klukkustund sem þú leggur í innleiðinguna sé þess virði og skili sér í betri þjónustu.

Dýrasti kosturinn í boði er að allt verði eins á næsta ári.

Tryggja miða
Póstlistinn

Fylgstu með Beyond the Sale

Skráðu þig á póstlistann og fáðu fréttir af dagskránni, fyrirlesurunum og því sem er í vændum. Ekkert flóð af póstum, bara það sem skiptir máli.

Spurt og svarað

Algengar spurningar

Fyrir hverja er ráðstefnan?

Fyrir sölufólk, sölustjóra og þau sem ákveða þjónustuna í rekstrinum. Dagurinn virkar best þegar nokkrir koma saman: teymi sem heyrir lausnir dagsins saman á mun auðveldara með að innleiða þær strax daginn eftir.

Hvað er innifalið í miðanum?

Heil dagskrá frá 09:00 til 16:30 og tengslamyndun til 18:00. Morgunkaffi, standandi hádegisverður og síðdegiskaffi. Spurt og svarað eftir hvert einasta erindi. VIP miðar innihalda að auki fremsta sætaröð, aðgengi að upptöku dagsins í gegnum vef og forgang þegar einkatímar með Ali daginn eftir fara í sölu.

Fæ ég sölureikning fyrir bókhaldið?

Já. Við kaup verður til sölureikningur með vsk sem hentar beint í bókhald fyrirtækja. Mörg stéttarfélög geta auk þess endurgreitt hluta ráðstefnugjalds úr fræðslusjóðum sínum, kannaðu rétt þinn hjá þínu félagi. Sum fyrirtæki eiga rétt á styrk frá Áttinni. Fyrirtæki geta líka bókað sæti og fengið sendan reikning, sjá „Bóka fyrir fyrirtæki“ efst á síðunni.

Ég er með ofnæmi eða þarf sérstakt aðgengi

Í greiðsluferlinu skráir þú ofnæmi, fæðuóþol og aðrar þarfir, til dæmis aðgengi. Við leysum það með veitingaaðila og Hörpu, þér að kostnaðarlausu.

Getum við komið sem hópur?

Já. Fyrirtæki bóka sætin með einu formi og fá kröfu í heimabanka; nöfn þátttakenda skráið þið síðar. 5 eða fleiri frá sama fyrirtæki fá 10% afslátt af almennu verði.

Verður dagurinn tekinn upp?

Já, dagurinn er tekinn upp. Aðgangur að upptökunum eftir viðburðinn fylgir VIP miðum. Almennir miðar innihalda ekki upptökur.

Hvernig fæ ég miðann minn?

Strax eftir greiðslu færðu tölvupóst með sölureikningi og miða með QR kóða. Þú sýnir kóðann í símanum við innritun og engin prentun er nauðsynleg.

Get ég fengið endurgreitt eða framselt miðann minn?

Miðar eru endurgreiðanlegir til og með 14 dögum fyrir viðburðinn. Eftir þann tíma má framselja miða á annan aðila, sendu okkur línu á hello@beyondthesale.is og við göngum frá því.

Hvernig kemst ég í Hörpu og hvar legg ég bílnum?

Harpa stendur við höfnina í miðborg Reykjavíkur. Bílastæðahús Hörpu er í kjallara hússins og fleiri bílastæðahús eru í göngufæri, auk þess sem strætó stoppar skammt frá. ATH: greiða þarf fyrir bílastæði í bílakjallara Hörpu, það er ekki innifalið í miða dagsins.

Á hvaða tungumáli fer dagurinn fram?

Dagurinn fer fram á ensku, svo allir í salnum fylgi öllu frá fyrsta orði til hins síðasta. Enskumælandi gestir eru velkomnir.

Stofnandinn

Hver stendur að deginum?

Beyond the Sale er sköpun Alexöndru Noor Douglas. Hugmyndin kviknaði þegar hún sá sama mynstrið aftur og aftur í íslenskum rekstri: fyrirtæki sem borga tvisvar fyrir sama viðskiptavininn og missa gott fólk án þess að skilja af hverju. Dagurinn er svarið hennar: fólkið sem hefur leyst þetta, samankomið á einu sviði, á einum degi. Svo þú þurfir aldrei að borga tvisvar aftur.

Salan er ekki endirinn. Hún er upphaf trausts.

Alexandra Noor Douglas