Viðskiptaráðstefna · Reykjavík 2026

BEYOND THE SALE

Turn customers into clientele.
16. september 2026
Harpa · Norðurljós
Allt að 300 gestir
Um viðburðinn

Enginn kennir þér á fólkið. Þessi dagur gerir það.

Beyond the Sale er ný heilsdagsráðstefna (9:00–17:30) um allt söluferlið, frá fyrstu kynnum til langtímasambands, með sérstakri áherslu á hvernig ör starfsmanna velta og heldni viðskiptavina eru eitt vandamál með sömu orsök. Þjónusta er lágmarkið, gestrisni er forskotið. Dagurinn svarar því hver á ábyrgðina á starfsmanninum og hver á ábyrgðina á viðskiptavininum.

Þema Dagsins

  • Gestrisni & þjónusta
  • Sala & viðskiptatengsl
  • Gervigreind í rekstri
  • Fjármál & vöxtur
  • Markaðssetning & Traust
Virðið

Hvað færðu út úr deginum?

Fræðsla sem nýtist strax

Raunverulegar reynslur, sannreyndar aðferðir. Áhersla lögð á uppbyggingu sambanda og trausts.

Meiri dýpt í stað hraða.

Fyrirlesarar fá lengri tíma heldur en bara stutt kynning. Meiri dýpt í fyrirlestri og Q&A.

Styrkjum teymið

Sami orðaforði, sama greining og sama forgangsröðun, alla leið út í framlínu fyrirtækisins.

Upplifun í fyrirrúmi

Matur og kaffi allan daginn til þess að tryggja að öllum líði vel á meðan við lærum.

Ráðstefnudagurinn

Einn dagur, fullt hús virðis

  • Miðvikudaginn 16. september 2026 í Hörpu
  • Heilsdagsráðstefna með fyrirlestrum og pallborði
  • Hagnýtar upplýsingar sem þú getur nýtt strax daginn eftir
  • Kaffi allan daginn, hádegisverður og veitingar innifalin
Tryggja miða
Fyrirlesarar

Staðfestir fyrirlesarar

Framkvæmdarstjórar og frumkvöðlar stíga á svið og deila reynslu sinni af öllu því sem viðkemur viðskiptum. Fylgstu með.

Ali Douglas
Aðalfyrirlesari

Ali Douglas

Framkvæmdastjóri Motor City Lexus · Bakersfield, Kaliforníu
Ari Auðunn Jónsson

Ari Auðunn Jónsson

Stofnandi og eigandi GoFlowtics
Fida Abu Libdeh

Fida Abu Libdeh

Stofnandi og framkvæmdastýra GeoSilica
Sólveig R. Gunnarsdóttir

Sólveig R. Gunnarsdóttir

Stofnandi og eigandi Strata Advisory · Fjármál og verðmætasköpun
?

Kynnt fljótlega

Dagskráin

Dagurinn í grófum dráttum

09:00Skráning & morgunkaffi
·Fyrirlestrar & frumkvöðlasögur
·Hádegisverður · skipulögð tengslamyndun
·Gervigreind, fjármál & gestrisni í sölu
·Pallborð · spurt & svarað
17:30Lokaorð & tengslamyndun

Nákvæm tímasett dagskrá verður kynnt fyrir viðburðinn.

Miðar

Miðar

Early bird

39.000 kr.án vsk
Fullur dagur og allar veitingar innifaldar. Lægra verð í takmarkaðan tíma, glugginn framlengist ekki.

VIP

65.000 kr.án vsk
Takmarkað sætaframboð.
  • Borðsæti fremst í sal, valin sæti og borðspjald
  • Forgangur til að bóka greidda einkaráðgjöf með Ali daginn eftir
  • Aðgangur að upptökum dagsins eftir viðburð
  • Allt sem almennur miði inniheldur

Almennt verð

49.000 kr.án vsk
Fullur dagur, hádegisverður og veitingar innifalin.

Hópar 5+

44.100 kr.án vsk-10%
10% afsláttur fyrir hópa. Tilvalið fyrir vinnustaði og teymi.

Öll verð eru án vsk. 24% vsk bætist við í greiðsluferli og sölureikningur fylgir.

Hópar: 5 eða fleiri frá sama fyrirtæki fá 10% afslátt af almennu verði.

Staðsetning
Harpa · Norðurljós

Einn glæsilegasti viðburðasalur landsins, í hjarta Reykjavíkur við höfnina. Norðurljósasalur Hörpu tekur allt að 300 gesti.

Spurt og svarað

Algengar spurningar

Fyrir hverja er ráðstefnan?

Fyrir þau sem hitta viðskiptavininn, og þau sem ákveða hvernig það fer fram. Eigendur, stjórnendur og millistjórnendur fá mest út úr deginum, sérstaklega þegar tveir eða fleiri koma saman frá sama fyrirtæki.

Hvað er innifalið í miðanum?

Heil dagskrá frá 09:00 til 17:30, morgunkaffi, standandi hádegisverður og síðdegiskaffi. Spurt og svarað eftir hvert einasta erindi.

Fæ ég sölureikning fyrir bókhaldið?

Já. Við kaup verður til sölureikningur með vsk sem hentar beint í bókhald fyrirtækja. Mörg stéttarfélög geta auk þess endurgreitt hluta ráðstefnugjalds úr fræðslusjóðum sínum, kannaðu rétt þinn hjá þínu félagi.

Ég er með ofnæmi eða þarf sérstakt aðgengi

Í greiðsluferlinu skráir þú ofnæmi, fæðuóþol og aðrar þarfir, til dæmis aðgengi. Við leysum það með veitingaaðila og Hörpu, þér að kostnaðarlausu.

Getum við komið sem hópur?

Já. 5 eða fleiri frá sama fyrirtæki fá 10% afslátt af almennu verði.